Já.....
svo.......
nennti ég því ekki og fékk mér kaffi
Bæ bæ
hahaha!! snilld!!
Smá grín til að lífga upp á próflesturinn i sólinni ![]()
Þetta er eins og veðrið gerist best á Íslandi!
+15°C
Fólkið á Spáni notar kuldaúlpur og þykka vettlinga.
Íslendingar liggja í sólbaði.
+10°C
Frakkar reyna af vanmætti að fá kyndinguna í gang.
Íslendingar planta blómum í garðana sína.
+5°C
Bílar á Ítalíu neita að fara í gang.
Íslenginar fara að gamni sínu í bíltúr á Saab druslunni.
0°C
Eimað vatn frýs.
Vatnið í Hvítá verður aðeins þykkra.
-5°C
Fólkið í Californíu frýs næstum til dauða.
Íslendingar grilla í síðasta sinn áður en veturinn skellur á.
-10°C
Bretar byrja að kynda húsin sín.
Íslendingar byrja að nota langerma boli.
-20°C
Götusalar byrja að flýja frá Mallorca.
Íslendingar enda miðsumarhátíðina. Haustið er gengið í garð!
-30°C
Grikkir deyja úr kulda og hverfa af yfirborði jarðar.
Íslendingar hætta að þurrka þvott úti.
-40°C
París byrjar að gefa eftir kuldanum.
Íslendingar standa í biðröð við pylsuvagnana.
-50°C
Ísbirnirnir byrja að flykkjast burt frá Norðurpólnum.
Íslenska landhelgisgæslan frestar björgunaræfingum í von eftir alvöru vetrarveðri.
-60°C
Mývatn frýs.
Íslendingar leigja sér spólu og halda sig inni við.
-70°C
Jólasveinninn heldur í suðurátt.
Íslendingar verða pirraðir því þeir geta ekki geymt brennivínið sitt úti.
Íslenska landhelgisgæslan setur í gang björgunaræfingar.
-183°C
Örverur í mat lifa ekki af.
Íslenskar kýr kvarta yfir handköldum bændum.
-273°C
Öll atóm staðnæmist vegna kulda.
Íslendingar byrja að tala um að það sé kalt úti.
-300°C
Helvíti frýs.
Ísland vinnur í Eurovision!
stolið frá henni Daylight hottí pottí
og BTW 10 dagar í útskrift. Búin að ná 4 áföngum af 6
hitt kemur í ljós seinna! og eignaðist nýja frænku!! tékkið á heimasíðunni hennar Lindu Splindu
Dagur eftir þennan dag, á nýjum stað :)
Spáið í því!!!! Læk 38 dagar í útskrift!!! ......hélt að sá dagur myndi aldrei renna upp! Újéééé.......![]()
EN hvað er málið með fjallgöngur!
Í alvöru! Hvað er það sem fær fólk til að fara á lappir klukkan 5 um morguninn, leggja af stað með rútu klukkan 7 út á land, keyra í 2 tíma að Eyjafjallajökli til þess eins að labba upp jökulinn í heila 10 tíma! Streð, sjálfspynting, hælsæri, kuldi, sól, frostbruni, máttleysi í öllum líkamanum og tala nú ekki um harðsperrurnar sem eru mig lifandi að drepa virkilega, virkilega, VIRKILEGA mjög hægt!....hvað er það sem fær mann til að gera þetta? Það er alveg spurning mánaðarins. ![]()
Ég held að svarið sé þessi magnaða tilfinning sem maður fær þegar maður kemur loks niður aftur! Held reyndar að Gummi fær þetta kikk þegar hann nær toppnum en ég fæ kikkið niðri
Eftir allar þessar pyntingar, erfiði og því um líkt þá fær maður þessa geggjuðu, mögnuðu tilfinningu yfir að geta sagt....I MADE IT !!!
svo bara þetta tæra loft, hreyfingin og að vera úti við! alveg meiriháttar!
Sem sagt, í þessum mánuði erum við Gummi búin að vera að æfa okkur fyrir að labba upp Eyjafjallajökul. Tókum Esjuna í brilljant veðri þann 16 mars, Helgafell í miklum kulda þann 20 mars, Trölladyngju í skítakulda þann 24 mars, Keili í góðu veðri 1 apríl, og svo loks Eyjafjallajökul núna um helgina.
Vorum mjög heppin með veður næstum því alla leiðina en á toppnum var skyggnið mjög slæmt og næstum alla leið niður af jöklinum. En við vorum í línu með 8 manna hóp svo að við vorum við öllu viðbúin.
Svo er það Hekla núna í byrjun maí og svo að lokum tekur Hvannadalshnjúkur við í lok maí. Reyndar kenni ég Gumma um þessa bakteriu sem lagst hefur á mig, því án hans hefði mér aldrei dottið þetta í hug.
Jú kannski en ég hefði aldrei framkvæmt það
Annars fórum við norður rétt fyrir páska þar sem Gummi steig sín fyrstu skref í mörg ár á skíðum. Það heppnaðist bara nokkuð vel og kom hann óbrotinn úr þeirri lífsreynslu.
Skelltum okkur á skauta líka og í keilu. Var bara virkilega skemmtilegir dagar.
Svo styttist óðum í útskriftina mína!
Alveg farin að skipuleggja út í eitt veisluna og annað. Það verður nett kaldhæðnislegt ef ég næ svo ekki að útskrifast en það má bara ekki koma fyrir. ![]()
Hérna er annars mynd af kjólnum sem ég ætla að biðja Kristínu að sauma á mig.
http://www.picturetrail.com/gallery/view?&p=999&uid=8725578&gid=16152591&&imgid=247034311&offset=105
Bara magnaður kjóll! Svo er þetta allt að smella saman. Sigurbjörg ætlar að fiksa hárið, Gréta ætlar að farða mig, Óli Harðar ætlar að mynda mig og já. Held að það sé komið flest allt. Svo fæ ég hellings hjálp með að baka fyrir veisluna og fleira. Vil bara þakka kærlega fyrir alla þá hjálp sem ég er að fá frá vinum og famelíu.
Má svo ekki gleyma að nefna það að nýji fjölskyldumeðlimurinn er nú að fara að líta dagsins ljós fljótlega
Heheh, svo er Gummzó búinn að setja bann á að Þórey hennar Lilju komi heim til síns
En aðalmálið á dagskránni núna er að klára barnaskólann, og svo byrja í nýrri vinnu um miðjann maí!! Ójá, lásuð rétt kæru vinir......Marta Karls ofissjöllí nó longer flugverndarstarfsmaður við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Újéee..... ég kveð þessa vinnu með litla sem nákvæmlega enga sorg í hjarta. Það eina sem maður á eftir að sakna eru vinnufélagarnir sem eru flest allir orðnir önnu fjölskylda manns. Verður erfitt að kveðja fólkið eftir að hafa unnið með þeim í 3 ár.
Fékk vinnu við skrifstofuþjónustu suðurnesja og KPMG sem er bara snilld. Tengist náminu mínu og mér bíðst að vinna þarna í vetur með skólanum líka sem á bara eftir að auðvelda lærdóminn vonandi fyrir mér. ![]()
Jæja, ætla að njóta þess að bora upp í nefið á minni ALLRA síðust næturvakt!! újéé, bara 2 og hálfur tími eftir! ......luflí!
Bæ
1 2 og nú!!
Ómæ ómæ...... á maður að fara að koma með færslu kannski!
Ekkert svakalega áhugarvert að gerast í mínu lífi held ég...... allavega ekkert sem þetta takmarkaða minni mitt man eftir.
Látum okkur sjá. Getum byrjað á því að röfla um hvað er búið að gerast áður en við förum í hvað á eftir að gerast. En áður en það allt gerist verð ég bara að tilkynna ykkur það, lesendur góðir að undur og stórmerki hefur gerst í bloggheiminum!! Hvað haldið þið að hafi gerst! Nei, hélt ekki. Það er ekki einu sinni hægt að giska á hvað gerðist! En ég skal upplýsa ykkur hvað gerðist í bloggheiminum nú fyrir stuttu. Ótrúlegt en satt þá er Hildi Ósk Indriðadóttur farið að leiðast það mikið að vinkonan er bara komin með bloggsíðu!! Já, þið lásuð rétt. Hún Hildur mín er byrjuð að blogga og ekki nóg með það þá er hún búin að vera geggjað dugleg með barnalandsíðuna líka!! Alveg ánægð með stelpuna sko! ![]()
www.123.is/bossalinga tékk it át
hummmm....... Gummi Grétar minn dró mig með sér að labba upp Þorbjörn við Grindavík um daginn.
Það var ágætist æfing að labba það en það styttist óðum í að við förum á Hvannadalshnjúk! En áætluð ferð þangað er 7 júní.
Áður en við förum það, förum við með hópnum upp bæði Eyjafjallajökul og Snæfellsjökul. Þetta verður alveg meiriháttar gaman og það er komin hellings tilhlökkun í mann. ![]()
Má nú ekki gleyma að nefna páskafríið sem er framundan. Alveg velkomið á mínar dyr.
Svo fer að styttast í útskriftina! Er á fullu að skipuleggja partý ársins þegar það gerist. Gvuð hvað ég verð hamingjusöm þegar ég kveð þennan barnaskóla með litla sem enga sorg í hjarta. ![]()
En planið um páskana er ekkert svakalegt..... jú reyndar ætla ég og Gummi Grétar upp í bústað fyrir norðan á mánudaginn fyrir páska og þar ætla ég mér að kenna þessari elsku á skíði.
Eða allavega reyna það. Svo að nemendur hans geta nú átt von á því að hann mæti á hækjum í kennslu eftir páska. ![]()
Neeeeei, segi svona. Hann á eftir að standa sig bara vel. Ekki neina trú á öðru.
Svo er ég bara að vinna páskahelgina sjálfa. Ekkert gaman þar svo sem......ekki nema mar splæsi vetrarfríi bara á þetta og vera bara í fríi. Pæling spæling...... ![]()
Humm, annars er ég búin að fara tvisvar í Bláfjöll á skíði. Ekki alveg að standa mig nógu vel í þeim pakkanum. En það er samt alveg takmarkað gaman að standa í 10 mín í röð til að komast í lyftuna, vera svo heillengi að komast upp með lyftunni og svo tekur í mesta lagi 2 mín að renna sér niður brekkuna! Og alltaf er það sama brekkan því ekkert annað er opið! ...... skíðamenningin á íslandi er bara ekki að gera sig skom! Heimta meiri snjó takk......
Svo var strákurinn hennar Hildar skírður en hann fékk nafnið Guðmundur Máni Hildarson. Bara nokkuð ánægð með nafnið á guttanum. Hann braggast bara mjög vel hjá mömmu sinni og stendur hún sig með eindæmum vel að sjá um hann. Þetta er víst ekki lítill pakki að vera ein með svona lítið barn. Bara það að fá ekkert að sofa er bara eitt og sér en að vera með barni 24/7 er ekkert grín. Mjööööög fín getnaðarvörn skal ég ykkur segja. ![]()
Fór á skarf með Jóni bróðir. Við fórum þegar það var ansi mikill snjór svo að við gátum ekki keyrt upp að staðnum sem við förum venjulega að veiða svo að við þurftum bara að gjössogvel að labbbidda!. Það var nú hægara sagt en gert að vaða snjó upp að hnjám, upp hóla og niður brekkur. Með byssurnar, skotin og allan pakkann á bakinu! Og Jón með brotið rifbein eða blæðingu á milli rifbeinanna! Þessi gaur er alveg ótrúlegur. En já, við löbbuðum þetta nú samt og komumst þetta fyrir rest. Sátum þolinmóð eftir fuglinum og veiðin endaði þannig að einn skarfur féll. Og hann féll með stæl þar sem ég og Jón skutum hann bæði.
pjæng pjæng pjæng
Jæja, ég er off...... Bæ
Oppdeit af síðastliðna ári .....seint í janúar :D
Þar sem þetta er nú fyrsta bloggið á nýju ári verð ég nú að koma með smá oppdeit af síðast liðna árið.....
JANÚAR: “Smælaðu framan í heiminn, þá mun heimurinn smæla framan í þig“...var mottóið mitt þann mánuðinn. Gerðist svo sem ekkert merkilegt þennan mánuðinn.
FEBRÚAR: “á skíðum skemmti ég mér trallall tralllallallala” var mottóið mitt. Skrapp norður yfir þemadagana á skíði og heimsókn til hennar Freydísar. Já.....thats it.
MARS: “Það er örugglega mun betra að vera geggjaður og vita það ekki, en að vera normal og vera samt í vafa” móttó mánaðarins. Fór aftur norður á skíði, keyrði meira að segja og varð veðurteft! Snillld..... Skilaði skattskýrslunni, og fór í vettvangsferð í háskóla íslands og álverið á vegum efnafræði 313. Svo var fermingarafmælið haldið sem ég mætti ekki í. Geggjað stuð....
APRÍL: Kvaddi afa..... borðaði páskaegg, fór á opna daginn á Bifröst.
MAÍ: “horfðu á björtu hliðarnar á lífinu” móttó mánaðarins. Próf í skólanum, tók eina köfun og já.....ekkert meir.
JÚNÍ: “það er skammtímur vermir að pissa í skó sinn”.....móttó. Fór norður enn og aftur. Freydís getur nú ekki kvartað yfir því að ég hafi ekkert heimsótt hana á þessu ári sko!! Svooooooo kom að hinni langþráðu interrail ferð!! Ég og Siggi skelltum okkur í 15 borgir á 22 dögum. Bjútífúl ferð sem ég mun seint gleyma.
JÚLÍ: “allt tekur enda einhverntíman”.....móttó. Komum heim úr interrail ferðinni, þreytt en sátt við allt saman. Fór ekki á Hróaskeldu sem ég er alveg þakklát fyrir núna. Lilja sys og Arnlaugur giftu sig. Fór að kafa, skotveiði, vann miða á tónleika með Tóbí og Magna en fór ekki.
ÁGÚST: “harðfiskur og bjór á 1000kr” setning mánaðarins. Fór í sónar með Hildi minni, skelllti mér AFTUR norður til Freydísar og þar enduðum við á heví djammi á fiskidögum á Dalvík. Fór í stangveiðiferð þar sem ég veiddi minn fyrsta fisk á flugustöng! Kjellan að standa sig sko! Fengum íbúðina afhenta og byrjuðum að flytja. Dimitri lést þennan mánuð líka eftir aftanákeyrslu. Blessuð sé minning bílsins míns.
SEPTEMBER: “frestaðu því ekki til morguns sem þú getur frestað lengur” ..... Fluttum inn á Háaleiti og þar með byrjaði sambúð mín og Hildar. Linda og Jón pulsa giftu sig. Fékk nýja flotta bílinn minn sem er enn nafnlaus. Fagnaði mínu 22 ára afmæli í 3ja sinn þetta árið.
OKTÓBER: fór á mína fyrstu alvöru gæsaveiðar. Þetta var snilldar helgi en það fylgir ekki sögunni hve aflinn var mikill. Fór í bílabíó í fyrsta skiptið.
NÓVEMBER: “hver er hraði myrkurs?” er spurning mánaðarins. Rjúpnaveiðitimabilið hófst en ekki varð mikið úr rjúpnaveiði þetta árið þar sem það var ekki þverfótað fyrir bjévítans veiðimönnum! Fór til Glasgow með vinnunni, fór með skóna mína til skósmiðsins og hélt áfram að telja niður dagana til jóla.
DESEMBER: “Jólin eru alveg að koma” setning mánaðarins. Skellti mér sem “maki” Sigga í vinnuferð hjá honum til Germannalands! Snilldar ferð út í eitt. Mikið drukkið, mikið gaman. Fór að veiða, fór á jólahlaðborð, fór á tónleika með Baggalútum og skellti mér á pottakynningu. Eyddi jólunum á næturvakt upp í flugstöð. Kúturinn hennar Hildar átti nú að láta sjá sig áður en árinu lyki en það tókst nú ekki.
En kúturinn lét sjá sig 3 jan eftir langa bið. Getið séð inni á barnalandi myndir og svona af þessu yndi. Óska bara Hildi minni innilega til hamingju með kútinn.
Nenni ekki meir.....Bæ
Last kristmas æ geif jú mæ hart!! :)
Skellti mér með vinnunni og óléttu konunni minni til Glasgowar 8 nóv. Það var bara gaman. Náðum að botna heimildna á visakortinu, versluðum jólagjafir og barnaföt. Kom heim aðeins með 3 pör af skóm sem er bara ansi vel gert hjá mér. Kem sjaldan með svona fá skópör. Annars skelltum við okkur með lest til Edinborgar sem var alveg ótrúlega falleg borg. Kom virkilega á óvart hvað hún er gjörólík Glasgow. Við fórum upp í kastalann og skoðuðum okkur um í svona sight seeing bus. En þetta var bara mjög skemmtileg ferð, borðuðum góðann mat og drakk helling af guinness.
Danný bauð svo mér og óléttu konunni í mat um daginn. Fengum súpu í forret, brauð og lasagna í matinn og svo sjúkkulaðiköku í eftirrrét.....nammmmmmmmmmmmmmm takk bara kærlega fyrir okkur. Við alveg sáttar...
Svo fór ég til Germannaland með vinnunni hans Sigga. Það var bara pjúra snillllld. Vorum eiginlega drukkin frá því að við mættum og þangað til að við fórum. Skelltum okkur í 2 skoðunnarferðir sem voru mjög fræðandi. Skrítið að sjá loksins þennan berlínarmúr sem maður er búin að læra alveg slatta um í skóla. Ég hafði ýmundað mér alveg himinháan, brúnan múr en svo var þetta bara svona 3metra hár grár veggur. Reyndar var vír og eitthvað í kringum hann og allir skotnir sem reyndu að komast yfir hann. Fengum að heyra líka helling af sögu þýskaland sem seint mun kallast skemmtiefni.
Lilja sys náði svo að neyða mig á einhverja pottakynningu um daginn sem er svo sem ekki frásögufærandi nema að settið af þessum pottum kostuðu aðeins 365 ÞÚSUND krónur!!
Í skaðabætur fyrir að þurfa að hlusta á 4 tíma kynningu um einhverja potta bauð Lilja sys mér með sér á Baggalúta. Og þetta var alveg þess virði! Þeir eru bara snillingar út í eitt! Ekkert annað hægt að segja.......
Jólin er svo að koma eftir viku og ég á næturvakt á aðfangadagskvöld.
Ég og Jón skelltum okkur á skarf um daginn og við náðum að negla einn með rifflinum! Jón tók hann á allavega 100m færi beint í hálsinn!! Smúð, brilljant skot hjá stráknum!!
Jæja, nenni ekki meir. Óska ykkur bara gleðilegra jóla og hafði þið það sem allra best yfir hátíðina.
Og já.....Hildur á að eiga núna 21.des en það er ekkert að ske! Hún fer væntanlega alveg 10 daga framyfir sagði ljósan. Isss....
Adíjóses
Stjörnumerkin og kynlíf
Mism. viðbrögð stjörnumerkja rétt á eftir samfarir
Hrútur: "Ok , gerum það aftur!?" 21. mars - 19. apríl
Freydís Ásta, Uni Hrafn
Naut: "Ég er svangur / svöng--- pöntum pizzu" 20. apríl - 20. maí
Eyþór, Ingibjörg, Lilja mín
Tvíburi: "Veistu hvar fjarstýringin er?" 21. maí - 20. júní
Sóley Bára, Svana, Sif, Jón Hrafn, Hildur, Siggi Þ og Hulda María.
Krabbi: "Hvenær giftum við okkur??" 21. júní - 22. júlí
Ragnheiður
Ljón: "Var ég ekki frábær??" – 23. júlí - 22. ágúst
Arnlaugur, Íris María, Siggi, Lexý beib
Meyja: "Ég verð að þvo rúmfötin?" 23. ágúst - 22. september
Eg að sjálfsögðu, Irma Rán, Ágústa, Erna frænka, Ómar og Erla
Vog: "Mér fannst þetta gott ef þér fannst það líka"
Sæbjörg, Dagbjört, Hildur Ósk, Ester
Sporðdreki: "Ég ætti kannski að tengjast þér?" 23. október - 21. nóvember
Ísak, Guðmundur
Bogamaður: Ekki hringja í mig-ég hringi í þig 22. nóvember - 21. desember
Hanna Panna
Steingeit: "Áttu nafnspjald?"
Daniella, Linda, Kristján Þorgils, Telma,
Vatnsberi: "Gerum það núna í engum fötum!"
Magga mús
Fiskur: "Hvað sagðist þú annars heita?" 19. febrúar - 20. mars
Sonja Dögg, Kristrún, Elli
Bara snilllld.....hvað segið þið? Passaridda?
Bingó og vetraskór
Eru froskar á svölunum hjá fólki í Keflavík!!! ég er að segja ykkur það, að það er einhver froskur hérna fyrir utan hjá mér! ég er búin að vera að læra í allan morgun og ég heyri alltaf grabbit grabbit annars lagið!! Gæti allt verið bara þarna uppi í mínum eigin heimi en tel það samt ekki líklegt!! ![]()
Veiðiferð númer 2 segið þið! ....jaaaaá, getum bara orðað það þannig að ég fékk allavega að sjá sveitina hans Sigga sæta loksins. Yndislegur staður sem hann á þarna og ég skil hann alveg að hann vilji eyða sem mesta tímanum þar. ![]()
Fyrsti snjórinn kom á sunnudaginn var. Mikil gleði sem fylgdi honum og ég fékk tækifæri á að búa til fyrsta snjóengilinn minn þennan vetur. Reyndar var klukkan ekki nema 7:30 á sunnudagsmorgni þegar ég lagðist niður í grasið og baðaði út höndunum í júniforminu. Hélt að Marta væri bara ein í heiminum en neeeeeei, að sjálfsögðu þurfti nágranninn að labba út akkúrat á meðan ég lá í snjónum eins og einhver vitleysingur!!.
Özzzz......held að hann haldi að ég sé mun brenglaðari en ég er nú þegar.
Fór aftur að sofa eftir að ég kom heim úr vinnunni, og vaknaði við það að krakkarnir á efrihæðinni voru í snjóstríði rétt fyrir utan gluggann hjá mér! Gargandi, vælandi, kvartandi...... það ætti að banna svona athafnir á sunnudögum fyrir hádegi! ![]()
Svo fór bara snjórinn daginn eftir! Issss........... En ég komst af því mér til mikillar ánægu, að það á að reyna að opna Hlíðarfjall núna 10. nóv!!! Snillllllllld.......![]()
2 dagar í Glasgow!!!
24 dagar í Berlín!!!
48 dagar í jólin!!!
Úff, orðin húkt á seriunni 24!! Shit, hvað það er stórhættulegt að byrja að horfa á! Maður getur eiginlega ekki hætt að horfa á þetta fyrr en sólarhringurinn er liðinn!! Hvernig ætli það hafi verið að þurfa að fylgjast með þessu vikulega í sjónvarpinu! Ég hefði aldrei haft þolinmæðina í það.
Elskulegi bíllinn minn kominn í vetraskóna. Bara sáttur við það held ég.... svo er bara að laga þessa beyglu þarna aftan á rassinum á honum. Þoli ekki fólk sem bakkar á mann og keyrir í burtu!! Arg.......... Vantar svo hugmyndir af nafni á hann. Hann getur ekki verið nafnlaus mikið lengur því sumir (as in Gummi) eru farnir að kalla hann “rauðu klessuna” og það er nú ekki alveg ásættanlegt sko!! ![]()
Svo koma fórnirnar sem fylgja því að vera vinkona!! Að vera vinkona einhvers þarf maður að gera ýmislegt fyrir vinkonu sína og hún gerir eitthvað á móti. Þannig virkar þetta oft. Nema stundum er hægt að fara út fyrir mörkin sko!!! Og þá á ég við að hún Daníella Holm dró aumingja Mörtu vinkonu sína, saklausu vinkonu sína á BINGO í Vinabæ!! Mægod........Hildur þóttist vera að vinna, hefur pottþétt grátið út vakt til að fá að vera að vinna þetta kvöld svo að hún slapp ansi vel. En já, svo að ég neyddist til að fara með henni Danný, Eirík sem átti sér enga undankomuleið og Gumma sem hafði meðal annars farið áður!! Drukkinn reyndar en samt...
.....Þetta var samt alveg áhugavert að skoða fólkið þarna. Alveg sér þjóðfélag sem er þarna saman komið! Við unnum ekki neitt, en þetta var alveg öpplevelse skom....
Fórum í leikhús á Pabbann!! snilldar leikrit! Mér var enn illt í maganum daginn eftir því að ég hló svo mikið. Mæli alveg með þessu leikriti
Well, farin ![]()
Kvak Kvak
Ég og pabbi lögðum af stað mánudaginn 1.okt eftir langa bið. Við ætluðum okkur að ná kvöldfluginu svo að við lögðum af stað austur upp úr 1 leytið. Við þurftum svo að koma við hjá veiðihorninu til að kaupa skot fyrir liðið og löbbuðum þar út með 600 skot! Svo var komið við í Bónus og keypt í matinn. Jónatan sem var eiginlega kennarinn okkar, var rétt á eftir okkur en Jón Hrafn og Alli ætluðu svo að koma um kvöldið.
Þegar við komum austur upp úr 6 leytið hittum við kallinn sem á landið til að spurja hann út í hvar við ættum að vera, hvar væri mesta gæsin og annað. Þá sagði hann nú að við værum allt of sein til að taka kvöldflugið þar sem það tæki allavega klukkutíma að keyra niður að söndum og annan tíma í að finna stað. Svo að pabbi og Jónatan skelltu sér í bjór og rauðvín og báru saman sögur, slúður um einhverja kalla og eitthvað álika skemmtilegt umræðuefni. Ég sökk mér bara niður í skólabækur.
Jón Hrafn og Alli komu svo seinna um kvöldið en þeir voru eitthvað frameftir að drekka og spjalla en ég gafst upp og skreið upp í koju.
Það var svo ræs klukkan 5 um morguninn og fór fólk á fætur í misjöfnu ástandi.
Ekki leið á löngu þegar fyrst gæsahópurinn kom inn. Við liggjum alveg grafkyrr og bíðum spennt eftir kalli frá Jónatani sem sá um að kallar þær inn með flautu. Svo loks kallar hann ,,SKJÓTIД og við stukkum upp, og skutum eins og við fengum borgað fyrir það! – pjæng – pjæng – pjæng!! Ein gæs féll niður dauð. Jónatan hleypur út á gras og stillir henni upp. Og svona hélt þetta áfram. Biðum eftir næsta hóp, stukkum upp og skutum. En árangurinn var afskaplega misjafn. Við vorum algjörir kálfar.....komin í skotstöðu, búin að miða og tilbúin til að skjóta svo......ekkert!! Gleymdum að taka öryggið af. Þetta var mikið svona en það féllu ekki fleiri gæsir þennan morgun. Við biðum samt alveg þokkalega þolinmóð í blautu grasinu með ógeðslega snigla skríðandi út um allt í kringum okkur…..ój.
Við fórum aftur upp í hús rétt eftir hádegi, snæddum þar hádegismat og gerðum klárt fyrir kvöldflugið. Jónatan kvaddi okkur svo þar sem hann þurfti að drífa sig í skólann um kvöldið.
Lögðum af stað í kvöldflugið upp úr 3. Þurftum að keyra dágóðan spotta til að komast að staðnum. Þurftum að fara yfir þónokkrar ár, hóla og holur. Loks fundum við þetta veiðihús sem við áttum að stoppa hjá og labba út frá. Við týnum á okkur búnaðinn og löbbum af stað. Þetta var nú langt frá því að vera auðveld ganga með allar byssurnar, gervigæsirnar, skotin og nestið en við héldum ótrauð áfram. Kom svo að því að við þurftum að vaða yfir eina á. Pabbi og ég ekki í vöðlum og Alli bara í stígvélum. Pabbi snéri við til að ná í sínar vöðlur en mínar voru upp í húsi. Svo að Alli þurfti að vaða yfir fyrst, svo náði Jón Hrafn í stígvélinn og lét mig fá þau til að geta farið yfir. Tók smá tíma en það hafðist að lokum. Fórum svo að reyna að finna nýlegan skít til að sjá hvar gæsirnar höfðu verið og gætu komið um kvöldið. Fundum góðan stað og stilltum upp gæsunum. Svo biðum við, og biðum, og biðum og biðum. Sáum engar gæsir fljúga yfir okkur en sáum helling af þeim lengst í austri. Okkur var að verða skítkalt og þreytt á því að bíða. Þegar myrkrið var að skella á, og nákvæmlega engin gæs komin ákváðum við að taka saman og fara upp í veiðihús. Á leiðinni í bílnum sáum við nokkruð hundruði gæsa fljúga frá heiðinni yfir í mýrina yfir vatnið. Ekki séns að ná þeim þar sem þær flugu yfir vatnið, en nóg af gæs var þarna. Við höfðum bara verið á bandvitlausum stað!! Þegar upp í hús var komið var klukkan að ganga 9. Eg og pabbi fórum í það að skella löppinni á grillið og gera matinn tilbúinn en Jón Hrafn og Alli fóru niður á akur til að stilla upp gæsunum. Maturinn varð ekki tilbúinn fyrr en upp úr 12 og menn orðnir vel þreyttir. Það var borðað, gengið frá og svo beint upp í rúm.
Ræs klukkan 5 daginn eftir og flestir enn þreyttir eftir gærdaginn. Fengum okkur morgunmat og skelltum okkur niður á akur. Við ætluðum ekki að vera á sama stað og síðast, heldur ætluðum við að staðsetja okkur aðeins betur. Við löbbuðum þangað sem við vorum búin að tala um að vera en þá fundum við ekki gervigæsirnar sem strákarnir höfðu sett upp kvöldinu áður!! Stóðum og klóruðum okkur í hausnum í smá tíma, svo fattaði Jón Hrafn það að þeir höfðu stillt þeim upp á vitlausum akri!! Algjörir jólar…
Þetta gekk nú ekki eins vel og morguninn áður. Voru ekki nema 3 – 4 hópar sem komu yfir okkur og gekk ekki vel að flauta þær inn. Það er ekki gott að skjóta á sama akrinum 2 morgna í röð þar sem gæsin styggist auðveldlega. Við lágum samt heillengi þolinmóð og biðum. Í eitt skipti þá biðum við róleg eftir að einhver gæs kæmi, vorum alveg að sofna, og þá allt í einu stekkur Jón Hrafn upp og skýtur beint upp í loftið!! Við það hrapar svo krummi dauður niður! Jón Hrafn kallar svo ,,HE! Toppiði þetta” og hleypur svo af stað til að ná í dauða krumma. Litla geðslega lyktin sem fylgdi honum, en Jón tók upp leðurmanninn og skar svo af honum klærnar. Ánægður með feng sinn.
En það varð nú ekkert meira úr veiðinni en þetta. Öllum var orðið nett kalt og pirringurinn alveg að segja til sín. Engin gæs hafði komið í langan tíma, alveg logn og rigning. Ekki gott skotveiðiveður. Við tókum þá bara saman og fórum upp í hús.
Við vorum þó upp til hópa mjög sátt við veiðiferðina. Vorum öll með nýjar byssur nema Jón Hrafn, fyrsti veiðitúrinn okkar allra nema Jónatans. Fengum að upplifa þetta í alvöru hvernig þetta er og lærðum alveg heilan helling. Ég vil bara þakka þeim kæralega fyrir meiriháttar ferð og vonandi náum við að endurtaka leikinn áður en gæsin fer af landinu. Annars fer nátturlega rjúpnatímabilið að hefjast og svo andartímabilið. Nóg að gera.......
Þetta er svona það helsta sem hefur á daga mína drifið. Annars var brúðkaupið hjá Lindu og Jóni 8 september og var það alveg ótrúlega flott og vel heppnað. Linda var ótrúlega falleg, í æðislegum kjól og Jón var mjög flottur í dressinu sínu. Skottan hún Hrafntinna var í hvítum prinsessukjól sem var bara æðilsegur. Heppnaðist allt mjög vel og ég veit ekki betur en svo að brúðhjónin voru bara mjög ánægð með daginn. Var svo með Hrafntinnu um nóttina, gekk mjög vel nema að litla snúllan var eiginlega lasin svo að hún gubbaði á gólfið og fíneri. Litla snúllan.....
Svo varð ég 22gja ára í 3ja sinn um daginn líka. Hélt upp á það hérna heima með afmælisveislu handa famelíunni þar sem Danný mín bakað fyrir mig. Alveg sátt og þakka henni bara kærlega fyrir. Svo hélt ég partý helgina eftir sem var bara gaman. Takk bara kærlega fyrir mig
Búin að kaupa mér æðislega bíl sem ég loksins fann eftir langa leit. Toyotu Corollu svona sport týpu. 2006 árgerð, rauð að sjálfsögðu, með dökkum rúðum. En það er búið að klessa hann!! Var ekki búin að eiga hann í 2 vikur þegar ég tók eftir því að það var búið að klessa hann! Einhver hefur líklegast bakkað á hann þar sem það er gat í stuðaranum aftan á! Ekkert sniðugt...... svo núna er hann bara með ljótann rass!! ........grát grát
Hildi minni líður alveg þokkalega vel. Bumban alveg að stækka út í eitt og litla krílið er alveg fullkomnlega heilbrigt. Meðgangan gengur alveg mjög vel og heilast henni Hildi minni bara mjög vel.
Svo er ég að fara til Glasgow með vinnunni minni í byrjun nóvembers og svo til Berlínar með Sigga í lok nóvembers. Bara snilld...... En já.....nóg komið í bili, á svo innilega að vera að læra en ekki blogga. Gaman samt að vita að einhverjir eru nú að lesa bloggið hjá mér
Bæ bæ
230 KeCity beibí ;D
Er alveg að meika það big tæm í þessu bloggdæmi!! Stend mig samt sem áður betur en nokkrir ákveðnir aðilar sem bera nafnið Daniella og Freydís Ásta til dæmis. ![]()
Allavega, þá er eitthvað búið að gerast síðan ég bloggaði síðast. Er flutt á Háaleiti 1 loksins. Flutningurinn gekk alveg ágætlega verð ég að segja miðað við allt það sem við fluttum. Við byrjuðum út í Sandgerði að ná í mitt dót sem var ekkert svo gasalega mikið. Bara sirka 30 kassar eða svo!
Og rúm sem ég var næstum búinn að saga í sundur til að koma því niður stigann en með brilljant hæfileikum eins og ég og hún Danný erum gæddar tókst að koma því niður í heilu lagi. Svo skelltum við okkur í 101 Reykjavík að ná í dótið hennar Hildar sem bjó bæ þö vei á 3ju hæð. Það var pínu mikið puð enda var maður næstum því game over eftir það. Fórum svo að ná í sófasettið og stofuborðið. Enn í dag eru kassar út um allt en við erum að vinna okkur í gegnum allt þetta dót og erum ansi duglega að henda óþarfar dóti. Vil bara þakka Eiríki og Daniellu kærlega fyrir hjálpina. Hefðum sko ekki meikað þetta án þeirra.
Ljósanótt var ansi skrautleg verð ég að segja. Byrjaði á því að finna mér outfitt fyrir kveldið en það var ísíer sed þen donn sko! Fann ekki fötin sem ég var búinn að finna mér fyrir kvöldið þar sem öll fötin voru í kössum. Leitaði og leitaði, en að lokum fann ég næstum því allt sem ég ætlaði mér að vera í nema einar bjévítans ermar en Danný reddaði því. Svo skutlaði Hildur mér út í Garð í innflutnings/afmælis/ljósanætur partýið hjá Eirík og Danný. Var að opna 3ja bjórinn þegar hún Hildur mín hringir í mig og segir mér að einhver dúfus hafi klesst aftan á sig og þetta var ansi harður árekstur. Ég og Danný fáum Dóra til að skutla okkur á slysstaðinn en vegna þess að það var ótrúlega mikil biðröð af bílum að slysstaðnum ákváðum við að hlaupa restina, á háum hælum btw. Svo að á meðan við erum að hlaupa þetta gefur hællinn á nýju 9000kr skónum mínum og brotnar!!!!!!!
Svo að ég þurfti að hlaupa restina eins og mongóliti með einn 5cm hæl! En þegar við komum á slysstaðinn var búið að keyra alla niður á sjúkrahús en það var mjög sárt að sjá aumingja Dimitri (bílinn minn) allan beyglaðan og bjánalegan. Aumingja snúðurinn.........
Dóri skutlaði okkur svo niður á sjúkrahús til Hildar sem var í miklu sjokki. Hún hafði fengið allmikið högg á bakið og hálsinn en annars var allt í lagi. Hjartslátturinn hjá barninu var fínn og allt í góðu lagi þar.
Slysið gerðist þannig að hún var að fara að beygja af Reykjanesbrautinni inn þar sem týndu Njarðvík. Var stopp þar með stefnuljós og alles. Svo kemur bíll fyrir aftan hana sem sveigir frá henni en bíllinn þar á eftir skellir beint aftan á hana.
Mamma hennar Dannýar kom svo og sótti okkur. Skutluðum Hildi heim og fórum svo aftur á djammið.
Það var gjörsamlega stappað niðri í bæ af fólki! Ótrúlegt en satt var biðröð inn á flest alla staðinna og það hef ég bara aldrei séð áður! Alveg ótrúlegt...... en þetta var mjög gaman fyrir utan þetta með Hildi, Dimitri og skóna mína.
Eitt sem mig langar líka að tala um, en það eru vinnubrögðin hjá lögreglunni. Þegar ég fer á sunnudeginum til að sjá bílinn og taka mína eignir úr bílnum fannst hann ekki! Við fórum til Bósa en hann kannaðist ekkert við að hafa sótt bíl um kvöldið, við fórum upp á lögreglustöð og spurðum þá en þeir vissu bara ekkert hvað varð af bílnum.!! Ég spurði slökkviliðsmanninn sem var á svæðinu þegar ég kom þangað hvort að bíllinn yrði ekki pottþétt dregin í burtu og hann sagði já við því. Svo við stöndum bara og klórum okkur í hausnum. Ég fer svo heim en fæ hringingu frá litla bróðir stuttu seinna þar sem hann fann bílinn, aleinan út á Reykjanesbraut, með lyklunum í svissinum!! Það gat hver sem er farið inn í bíllin og tekið veskið mitt, og annað verðmæti sem var í honum! Og það voru nú ekki fáir á ferli þetta kvöld! Ég skil vel að það hafi verið brjálað að gera hjá lögreglunni þetta kvöld en halló! Þetta finnst mér samt bara bjánalegt!
Svo þegar ég og Hildur fórum á mánudaginn til að láta taka skýrslu af Hildi og ná í skýrsluna sem var tekin á staðnum til að fá bílaleigubíl var hún ekki tilbúin! Það var ekkert búið að gera í henni, og löggimanninn sem var þarna gat ekki tekið skýrslu af Hildi þar sem hann vissi bara ekkert um málið!! Hann gat heldur ekkert sagt um hvenær hún yrði gerð. Æj, skil alveg að löggan hafi mikið að gera en kommon......!!
Já, þetta var svona smá útrás. Ennnn Jón bróðir og Linda eru að fara að gifta sig um helgina. Verður svaka stuð..... ég verð með Hrafntinnu um helgina svo að það verður bara stuð hjá okkur.
....
Allavega vona ég að Lilja mín geti skemmt sér yfir þessum lestri þó að hún veit þetta allt nú þegar :D held að hún sakni Mörtu sinnar doldið mikið sko....... ![]()
Lifið í lukku, en ekki í krukku
( btw... komin með Bjé réttindin á skotveiðileyfið mitt :D )

